Um okkur
Sillukot ehf. - handunnar íslenskar heimilisvörur
Fyrirtækið var stofnað árið 2019 af Sigríði Jóhannesdóttur og Júlíusi Sigurbjartssyni. Þá festu þau kaup á fyritækinu Sælusápum sem áður var staðsett á Lóni 2 í Kelduhverfi.
Sigríður og Júlíus eru sauðfjárbændur á Gunnarsstöðum í Þistilfirði. Þau eiga 3 börn, Berghildi Ösp (2004), Ásgerði Ólöfu (2007) og Dagbjörtu Laufeyju (2012).
Fyrirtækið Sælusápur var stofnað af Guðríði Baldvinsdóttur og Einari Ófeigi Björnssyni árið 2008. Guðríður hafði þá framleitt sápur til eigin nota um nokkurra ára skeið og langaði að kynna handgerðar sápur fyrir fleiri en vinum og ættingjum. Hún tók því þátt í Vaxtarsprotum á vegum Impru-nýsköpunarmiðstöðvar og Framleiðnisjóðs landbúnaðarins og stofnaði Sælusápur- Lón 2 ehf í kjölfarið.
Íslenskt, já takk!
Handgerðar íslenskar heimilisvörur úr náttúrulegum hráefnum
Við notum einungis gæðahráefni
- Handtíndar jurtir
- Íslensk tólg
- Ólífuolía
- Kókosolía
- Repjuolía
- Náttúruleg steinefni
- Viðurkenndar ilmolíur
- Hráefni úr heimabyggð
- Án rotvarnarefna